6. fundur 2009 – haldinn 16. október

Fundinn sem haldinn var Selfossi sátu; Guðbjörg Jónsdóttir formaður, Guðni Einarsson, Ragnar Lárusson, Egill Sigurðsson, Gunnar Eiríksson og Sveinn Sigurmundsson framkvæmdastjóri.



  1. Minnst var tveggja látinna félaga, Hjalta Gestssonar og Steinþórs Runólfssonar.

  2. Endurskoðun á samningi LBHÍ við Stóra Ármót. Á fundinn mættu Ágúst Sigurðsson og Grétar Hrafn. Vegna niðurskurðar á fjárlögum óskar LBHÍ eftir verulegum lækkunum á mánaðarlegum greiðslum vegna aðstöðu að Stóra Ármóti næstu tvö ár. Sveini falið að ganga frá samkomulagi við LBHÍ. Grétar Hrafn fór yfir þær tilraunir sem eru í gangi á Stóra Ármóti. Rætt var hvernig auka megi upplýsingastreymi frá þeim tilraunum sem eru í gangi á Stóra Ármóti.

  3. Skerðing á fjárframlögum samkvæmt búnaðarlagasamningi á næsta ári. Sveinn fór yfir hvað þær þýða fyrir BSSL.

  4. Endurskipulagning ráðgjafaþjónustu. Runólfur Sigursveinsson mætti á fundinn undir þessum lið. Runólfur gerði grein fyrir því að á vegum BÍ væri hann í nefnd sem á að koma með tillögur að endurskipulagningu ráðgjafaþjónustu á landsvísu fyrir næsta stjórnarfund BÍ og formannafund búnaðarsambandanna. Málið rætt.

  5. Kynbótasýningar síðasta sumar og fjárhagsleg útkoma. Sveinn fór yfir uppgjör þar sem fram kom að sýningarnar stóðu undir sér fjárhagslega. Heildarvelta var 16 milljónir kr.

  6. Starfsmannahald. Sveinn fór yfir þau mál og þá starfsemi sem í gangi er á haustmánuðum.

  7. Fjárhagsstaðan. Sveinn fór yfir rekstur og peningalega stöðu BSSL.

  8. Önnur mál. Búið er að stofna starfsmannafélag meðal starfsmanna BSSL og bændabókhalds. Samþykkt var að styrkja félagið um kr. 200.000 sem stofnframlag.

Fundi slitið,


Guðni Einarsson


back to top