Fóðurstöð Suðurlands byggir í Flóahreppi

Fyrsta skóflustunga að nýbyggingu Fóðurstöðvar Suðurlands var tekin í gær í  Heiðargerði í Flóahrepp.  Bjarni Stefánsson stjórnarformaður Fóðurstöðvarinnar tók fyrstu skóflustunguna að framtíðarhúsnæði fyrir starfsemina Fóðurstöðvarinnar.  Byggingin sem nú á að rísa verður 500 fermetrar og mun hýsa frystigeymslur og tæknirými, sem á að vera tilbúið í vor.  Áætlaður kostnaður við þessa framkvæmd er um 100 milljónir.  Síðar er stefnt að því að koma starfseminni á einn stað og verður það gert eftir efnum og aðstæðum. Fóðurstöð Suðurlands framleiðir fóður fyrir loðdýrabændur á Suðurlandi, úr lífrænum úrgangi. Magnús Hlynur Hreiðarsson var á svæðinu og tók meðfylgjandi myndir.


back to top