Verð á mjólk til bænda hækkar þann 1. júlí n.k.

Verðlagsnefnd búvara hefur tekið ákvörðun um að afurðastöðvaverð á mjólk til bænda hækki um 3,25 kr/l eða 4,4% þann 1. júlí n.k., úr 74,38 kr/l í 77,63 kr/l. Á sama tíma mun heildsöluverð á mjólk og mjólkurvörum, sem nefndin verðleggur, hækka um 4,25%.
Þó hækkar smjör um 6,7% og mjólkurduft til iðnaðar um 6%. Þá hækkar vinnslu og dreifingarkostnaður mjólkur um liðlega 4,1%. Ástæður þessara verðbreytinga eru vegna launabreytinga og hækkana á aðföngum við búrekstur.


back to top