Veffræðsla LK – Áburðargjöf og nýjungar við dreifingu

Áburðargjöf og nýjungar við dreifingu er áttundi fyrirlesturinn á þessum vetri.  Fyrirlesari er Finnbogi Magnússon, bútæknifræðingur og framkvæmdastjóri Jötuns véla.  Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 13. janúar.

Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út á sínu öðru tilraunaári verkefnisins, en síðasta ár gekk vonum framar.  Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim sem við sendum út í fyrra. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.

Nánar á naut.is


back to top