Vænta má mikilla vatnavaxta

Búast má við að mikið hækki í ám og að einhverjar ár flæði yfir bakka sína en Veðurstofan varar við stormi og asahláku. Vatnamælingar fylgjast grannt með þróun mála að sögn almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra. Björgunarsveitir Slysavarnafélagsins Landsbjargar eru í viðbragðsstöðu ef þörf krefur.

Almannavarnadeild ríkislögreglustjóra vekur athygli  á viðvörun frá Veðurstofunni en gert er ráð fyrir stormi víða um land en þó hvassast vestanlands.  Einnig mun hlýna nokkuð um allt land ásamt því að gert er ráð fyrir rigningu um mest allt land seinnipartinn og í kvöld.


Í tilkynningu almannavarnadeildar ríkislögreglustjóra segir að mikilvægt sé að fólk hreinsi vel frá niðurföllum og tryggi að úrkoma og leysingavatn eigi greiða leið í þau. Þá hvetur almannavarnadeild RLS fólk auk þess til að huga vel að lausum munum, fara varlega og fylgjast vel með fréttum af veðri og færð.

Búnaðarsambandið hvetur búfjáreigendur til þess að huga að skepnum, sérstaklega hrossum, sem verið gætu í flóðahættu en eins og áður sagði má búast við að mikið hækki í ám er líða tekur á kvöldið og til morguns.


back to top