Tveir bændur sæmdir fálkaorðunni

Forseti Íslands, hr. Ólafur Ragnar Grímsson, sæmdi í gær tíu Íslendinga fálkaorðunni við hátíðlega athöfn á Bessastöðum. Af þessum tíu eru tveir starfandi bændur, þar af annar sunnlenskur, en það er Ólafur Eggertsson, bóndi á Þorvaldseyri undir Eyjafjöllum. Hann hlaut riddarakross fyrir nýjungar í landbúnaði. Þá hlaut Guðrún Jónsdóttir bóndi á Arnbjargarlæk í Þverárhlíð í Borgarbyggð riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og velferðarmála. A.m.k. einn annar orðuhafi ætti að vera bændum að góðu kunnur en það er Páll Bergþórsson, fv. veðurstofustjóri sem hlaut riddarakross fyrir rannsóknir á veðurfari og sögu þess.

Fálkaorðuhafar þann 17. júní 2009 eru:


  1. Árný J. Guðjohnsen ritari, Reykjavík, riddarakross fyrir störf að félags- og mannúðarmálum.
  2. Björn Jónsson fyrrverandi skólastjóri, Seltjarnarnesi, riddarakross fyrir framlag til uppeldismála, menningar og skógræktar.
  3. Böðvar Guðmundsson rithöfundur, Danmörku, riddarakross fyrir framlag til íslenskrar menningar og bókmennta.
  4. Guðrún Jónsdóttir bóndi, Arnbjargarlæk, riddarakross fyrir störf á vettvangi félags- og velferðarmála.
  5. Hafsteinn Þorvaldsson fyrrverandi formaður UMFÍ, Selfossi, riddarakross fyrir framlag til félags- og íþróttamála.
  6. Helga Jónsdóttir bæjarstýra, Fjarðabyggð, riddarakross fyrir framlag til opinberrar stjórnsýslu.
  7. Hólmfríður Árnadóttir fyrrverandi prófessor, Reykjavík, riddarakross fyrir framlag til listgreinakennslu í íslensku skólakerfi.
  8. Ólafur Eggertsson bóndi, Þorvaldseyri, riddarakross fyrir nýjungar í landbúnaði.
  9. Pálína Ása Ásgeirsdóttir hjúkrunarfræðingur, Sviss, riddarakross fyrir framlag til alþjóðlegs hjálparstarfs.
  10. Páll Bergþórsson fyrrverandi veðurstofustjóri, Reykjavík, riddarakross fyrir rannsóknir á veðurfari og sögu þess.

Búnaðarsamband Suðurlands óskar Ólafi Eggertssyni og öðrum fálkaorðuhöfum til hamingju með þessa sæmd.



back to top