SS lækkar verð á Yara áburði

Sláturfélag Suðurlands hefur sent frá sér tilkynningu þess efnis að ákveðið hafi verið að lækka verð á áburðartegundunum NP 26-6, NPK 24-4-7 og NPK 15-7-12, en verðskrá Yara var birt 25. janúar s.l. Að sögn SS er þetta gert til að tryggja viðskiptavinum fyrirtækisins afar hagstætt verð á einkorna Yara áburði. Þeir sem þegar hafa pantað Yara áburð frá SS munu njóta einnig verðlækkunarinnar og þurfa ekki að gera neinar sérstakar ráðstafanir vegna þess að því er fram kemur í tilkynningunni.
Ný verðskrá og nánari upplýsingar eru á heimasíðunni yara.is og hjá sölumönnum.


back to top