Skráningarfrestur á kynbótasýningu í Víðidal framlengdur

Skráningarfrestur á kynbótasýninguna í Víðidal dagana 13. og 14. maí hefur verið framlengdur fram á miðnætti á sunnudag 5. maí. Skráning og greiðsla fer fram í gegnum netið á síðunni www.worldfengur.com þar sem valið er „skrá hross á kynbótasýningu“. Opnað var á skráningar á allar kynbótasýningar vorsins þann 15. apríl síðastliðinn.

Ef fjöldi hrossa verður innan við 35 hross munu þau verða dæmd mánudaginn 13. maí og yfirlitssýning daginn eftir þriðjudaginn 14. maí en þetta verður auglýst nánar eftir helgi. Allar frekari upplýsingar má fá í síma Ráðgjafamiðstöðvar landbúnaðarins 516-5000 eða hér á heimasíðunni, undir liðnum búfjárrækt/hrossarækt/kynbótasýningar má t.d. finna leiðbeiningar um hvernig eigi að skrá hross á sýningu. Einnig er hægt að senda fyrirspurnir á netföngin lr@rml.is og  rml@rml.is.                   

Minnum á að allir stóðhestar verða að vera DNA greindir svo og foreldrar þeirra. Úr stóðhestum fimm vetra og eldri þarf að liggja fyrir blóðsýni og spattmynd í Worldfeng til að hægt sé að skrá þá á sýningu.


back to top