Setning Búnaðarþings og matarhátíð í Hörpu

Á vef Bændasamtaka Íslands bondi.is er sagt frá viðburðarríkri helgi í Hörpu.  Laugardaginn 1. mars verður Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands formlega sett við hátíðlega athöfn og kokkakeppni matarhátíðarinnar Food & Fun fer fram í kjölfarið. Á sama tíma verður iðandi mannlíf á matarmarkaði Búrsins, þar sem ýmsir smáframleiðendur bjóða fram sínar vörur. 

Búnaðarþing Bændasamtaka Íslands, laugardaginn 1. mars kl. 12.30-14.00 Salurinn Silfurberg á 1. hæð Hörpu
Allir eru velkomnir á setningarathöfn Búnaðarþings sem hefst með léttri hádegishressingu í boði íslenskra bænda. Kór Menntaskólans við Hamrahlíð syngur, landbúnaðarverðlaunin verða veitt og Magni Ásgeirsson tekur lagið. Sindri Sigurgeirsson, formaður BÍ, setur þingið og Sigurður Ingi Jóhannsson, sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra flytur ávarp.

Kokkakeppni Food & Fun, laugardaginn 1. mars kl. 13.00-16.00 Salurinn Norðurljós á 1. hæð Hörpu Food & Fun hefur löngum verið einn af hápunktum ársins í íslenskri veitingaflóru. Nokkrir gestakokkar keppa sín á milli um titilinn Food & Fun matreiðslumaður ársins í Hörpunni. Veitingastaðirnir sem taka þátt í hátíðinni munu bjóða gestum að bragða á dýrindis mat sem gerður er úr hágæða íslensku hráefni.

Vetrarmarkaður Búrsins kl. 11.00-17.00 (laugardaginn 1. mars og sunnudaginn 2. mars) Jarðhæð Hörpu Ljúfmetisverslunin Búrið heldur stærsta matarmarkað landsins, þar sem bændur, framleiðendur og neytendur bera saman bækur sínar og stunda viðskipti. Einkunnarorð Vetrarmarkaðarins eru „Uppruni, umhyggja og upplifun“ og öruggt að allir finna eitthvert góðmeti við sitt hæfi.

Á sama tíma verður ýmislegt um að vera í húsinu. Vélasalar sýna dráttarvélar, Landbúnaðarháskóli Íslands kynnir spennandi námsleiðir, hamborgarabíllinn Tuddinn verður ekki langt undan og sauðfjárbændur og Meistarafélag kjötiðnaðarmanna mæta með grillvagninn kl. 14 á laugardag.

Allir eru velkomnir í Hörpuna!


back to top