Sækja þarf um leyfi til flutnings líflamba milli varnahólfa fyrir 1. júlí n.k.

Þeir sem sækja um leyfi til að flytja líflömb milli varnarhólfa skulu sækja um það til Matvælastofnunar fyrir 1. júlí á sérstökum eyðublöðum, sem eru að finna á heimasíðu stofnunarinnar. Matvælastofnun veitir leyfi fyrir 1. ágúst eða hafnar umsókninni ef umsækjandi uppfyllir ekki skilyrði reglugerðarinnar.
Þeir sem hyggjast sækja um eru hvattir til að kynna sér reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða.

Samkvæmt reglugerð nr. 550/2008 um flutning líflamba milli landsvæða skulu þeir sem hyggjast selja líflömb sækja um það til Matvælastofnunar. Stofnunin hefur nú farið yfir umsóknirnar og veitt þeim umsækjendum sem uppfylla skilyrði reglugerðarinnar leyfi til að selja líflömb og/eða kið.


Nánari upplýsingar veita: Halldór Runólfsson, yfirdýralæknir, Þorsteinn Ólafsson, sérgreinadýralæknir, og héraðsdýralæknar í síma 530-4800


Sjá nánar á vef Matvælastofnunar:
Varnarhólf
Eyðublöð og leiðbeiningar
Listi yfir þá sem hafa fengið leyfi til að selja líflömb


back to top