Réttir á Suðurlandi haustið 2019

Fyrstu réttir haustsins á Suðurlandi, verða sunnudaginn 8. september, en þann dag er réttað á 3 stöðum, í Haldrétt og Þóristungurétt í  Holtamannaafrétti, Rangárvallasýslu og Laugarvatnstétt, Árnessýslu.  Á vef Bændsblaðsins er listi yfir allar fjár- og stóðréttir haustsins, sjá bbl.is Rétt er að minna á að villur geta slæðst inn í listann og því alltaf best að hafa samband við heimamenn á hverjum stað til að fá staðfestingu á réttri dag- og tímasetningu.  Hér fyrir neðan má sjá listann yfir Suðurland.

Réttir á Suðurlandi haustið 2019

Austur-Landeyjaréttir hjá Grenstanga, Rang. sunnudaginn 22. sept. kl. 14.00
Brúsastaðarétt í Þingvallasveit, Árn. sunnudaginn 15. sept. kl. 17.00
Fjallrétt við Þórólfsfell, Rang. mánudaginn 9. sept. kl. 10.00
Fljótshlíðarrétt í Fljótshlíð, Rang. sunnudaginn 15. sept. kl. 11.00
Fossvallarétt við Lækjarbotna sunnudaginn 15. sept. kl. 11.00
Haldréttir í Holtamannaafrétti, Rang. sunnudaginn 8. sept. kl. 9.00
Heiðarbæjarrétt í Þingvallasveit, Árn. laugardaginn 14. sept. kl. 15.00
Hraðastaðarétt í Mosfellsdal sunnudaginn 15. sept. kl. 13.00
Hrunaréttir í Hrunamannahreppi, Árn. föstudaginn 13. sept. kl. 10.00
Húsmúlarétt við Kolviðarhól, Árn. laugardaginn 14. sept. kl. 15.00
Kjósarrétt í Kjós sunnudaginn 22. sept. kl. 15.00, seinni réttir sun. 13. okt. kl. 15.00
Krýsuvíkurrétt v. Suðurstrandarveg, Gullbr. laugardaginn 28. sept. kl. 13.00
Landréttir við Áfangagil, Rang. fimmtudaginn 26. sept. kl. 12.00
Laugarvatnsrétt, Árn. sunnudaginn 8. sept., um kl. 17.00
Reyðarvatnsréttir á Rangárvöllum laugardaginn 21. sept. kl. 11.00
Reykjaréttir á Skeiðum, Árn. laugardaginn 14. sept. kl. 9.00
Selflatarétt í Grafningi mánudaginn 16. sept. kl. 9.45
Seljalandsréttir undir Eyjafjöllum, Rang. laugardaginn 21. sept.
Selvogsrétt í Selvogi, Árn. sunnudaginn 15. sept. kl. 9.00
Skaftholtsréttir í Gnúpverjahreppi, Árn. föstudaginn 13. sept. kl. 11.00
Tungnaréttir í Biskupstungum laugardaginn 14. sept. kl. 9.00
Vestur-Landeyjaréttir við Forsæti, Rang. sunnudaginn 22. sept. kl. 14.00
Þóristunguréttir, Holtamannaafr., Rang sunnudaginn 8. sept. kl. 9.00
Þórkötlustaðarétt í Grindavík laugardaginn 21. sept. kl. 14.00
Ölfusrétt í Reykjadal, Ölfusi sunnudaginn 15. sept. kl. 16.00

 


back to top