Neyðarlögin gilda

Hæstiréttur hefur staðfest að neyðarlögin svokölluðu, sem kváðu á um forgang innstæðna í þrotabú fjármálastofnana, haldi gildi sínu en þau voru sett í október 2008. Samkvæmt þessu verður hægt að byrja að greiða tryggingarsjóðum breskra og hollenskra innistæðueigenda út úr þrotabúi Landsbankans vegna Icesave-reikninganna. Skilanefnd Landsbankans hefur boðað til blaðamannafundar klukkan 15 vegna málsins.

Hæstiréttur hefur þar með staðfest úrskurði Héraðsdóms Reykjavíkur um að ekki hafi verið sýnt fram á, að neyðarlögin séu í andstöðu við íslensku stjórnarskrána, mannréttindasáttmála Evrópu eða EES-samninginn.


Héraðsdómur taldi, að með setningu neyðarlaganna svonefndu í október 2008 hafi verið stefnt að lögmætu markmiði, að forða ríkinu frá yfirvofandi greiðsluþroti og samfélaginu frá efnahagshruni.


back to top