Námskeið í plægingum

Dagana 28 -30 apríl býður Vélfang í samstarfi við Kverneland verksmiðjurnar til plæginganámskeiðs. Leiðbeinandi er Stein Kverneland sem alin er upp við plóga og plægingar og hefur áratuga reynslu í starfi. Kennsla fer fram á ensku og íslensku og er öllum opið og án endurgjalds, en nauðsynlegt er að skrá sig fyrir 23. apríl.  Á Suðurlandi verður námskeið þann 29. apríl hjá Búaðföngum að Stórólfsvelli við Hvolsvöll. Skráning er í símum 580-8203 og 840-0823 og á netfangið ske@velfang.is.

Nánar á heímasíðu Vélfangs velfang.is Auk námskeiðsins á Stórólfsvelli verða námskeið á Hvanneyri (28 apríl. Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri. Bútækni húsið) og Akureyri (30 apríl Vélfang Akureyri, Frostagötu 2). Námskeiðið stendur frá 10:30 – 16:00 alla daganna.

Til hægðarauka er námskeiðinu skipt í tvo hluta. Farið er yfir tengingar, búnað og stillingar plóga undir þaki á hverjum stað. Að því loknu er stefnan tekin út á akurinn og áframhaldandi verkleg kennsla á sér þar stað.

Námskeiðið er öllum opið og án endurgjalds. Af hagkvæmnisástæðum er æskilegt að þeir sem sækja okkur heim skrái sig hið fyrsta, og helst ekki síðar en 23 apríl, verði því við komið. Það gefur okkur líka tækifæri á að vísa þáttakendum hvern á annan til að sameinast um farkost.
Á hverjum stað verður kennt á sem breiðasta línu af Kverneland plógum. Hina klassísku AB/AD plóga með breytilegri sporvídd og strengbreidd. ES vendiplóga og hin byltingarkennda 150 S Variomat vendiplóg. Plógur sem er heilsmíðaður úr hitameðhöndluðu stáli sem gerir það að verkum að nota má hann við léttar dráttarvélar, lágar í hestöflum með hóflega lyftigetu á þrítengibeisli.
Skráning er í símum 580-8203 & 8400-823 og á netfangið ske@velfang.is

 


back to top