Mesti fallþungi í yfir 100 ár

Meðalþyngd dilka hjá SS í ár er 16,33 kg og hefur aldrei verið hærri í 105 ára sögu SS. Sömu sögu er að segja frá Norðlenska en þar var meðalviktin 16,28 kg og hefur aldrei verið hærri í sögu félagsins.
Þyngsti dilkurinn sem lagður var inn hjá SS þetta árið kom frá Eiríki Jónssyni í Gýgjarhólskoti í Bláskógabyggð. Vóg hann 33,3 kg. Hann átti einnig næstþyngsta dilkinn, sem vóg 32,9 kg. Þess má geta að af 10 þyngstu dilkunum voru sjö frá Eiríki.
Meðalþyngdin hjá SS í fyrra var 15,72 kg hækkaði því um ríflega 600 grömm milli ára. Þegar allt er talið, þjónustuslátrun að vori, sumarslátrun og haustslátrun hefur verið slátrað hjá SS á Selfossi 95.926 dilkum og 8.380 fullorðnum kindum eða alls 104.306 stk. Á sama tíma árið 2011 hafði verið slátrað 92.431 dilk og 7.603 fullorðnum kindum eða alls 100.034 stk. Aukning slátrunar er því u.þ.b. 4% milli ára.

Ráðstöfun kjöts og annarra afurða var með hefðbundnum hætti. Ferskt kjöt hlutað og skorið bæði á Selfossi og á Hvolsvelli, skrokkar frystir í heilu og grófhlutaðir á báðum stöðum. Kjöt flutt út og sett í geymslur á Hvolsvelli, Selfossi og í leigugeymslur til eigin ráðstöfunar eða útflutnings síðar. Slátur og innmatur fer í slátursölu, til frystingar fyrir kjötvinnslu og til útflutnings. Gærur eru saltaðar á staðnum og fluttar út jafnóðum.
Helstu útflutningsmarkaðir eru í Evrópu, Asíu og Rússlandi. Vaxandi eftirspurn er erlendis eftir aukaafurðum af ýmsu tagi. Þannig eru lambatyppi og lungu nú flutt út í fyrsta skipti auk vamba, garna og ýmiskonar fitu og afskurðar.

Það færist í vöxt að bændur taki heim fé til eigin sölu eða verkunar og er áhugaverð viðbót við íslenskan kjötmarkað. SS leggur þessu verkefni lið með því að hluta kjöt og ganga frá því í vandaðar pakkningar og hefur útbúið sérmerkingar í þessum tilgangi.
Ný tækni var notuð þetta haust í fyrsta skipti, svokölluð rafmagnsmeyrnun sem bætir meyrni kjöts og gerir hraðari kælingu mögulega. Einnig var tekin í notkun ný skurðar- og pökkunarlína og hún meðal annars notuð til að pakka verðmætum afurðum úr hrygg fyrir lúxusmarkaði í Tokyo og Moskvu.

Frétt af heimasíðu SS


back to top