Kókómjólk valin besta ferska mjólkurvaran á Norðurlöndum

Kókómjólk frá Mjólkursamsölunni var valin besta ferska mjólkurvaran á Norðurlöndum á fagsýningu norrænna mjólkursamlaga sem haldin er í Herning. Þetta er í fyrsta skiptið sem verðlaunin falla öðrum en Dönum í skaut. Guðmundur Geir Gunnarsson, mjólkurbússtjóri MS á Selfossi, veitti viðurkenningunni móttöku úr hendi Jóakims Danaprins. Mjólkurbú hvaðanæva af Norðurlöndum taka þátt og er þetta í fyrsta sinn sem mjólkurbú utan Danmerkur vinnur þessi verðlaun.
Í tilkynningu frá MS segir að Íslendingar drekki árlega yfir tíu milljón fernur af kókómjólk og verið er að meta möguleika á útflutningi. Auk verðlauna fyrir kókómjólk fékk Mjólkursamsalan sérstaka viðurkenningu fyrir SMS skyr, sem ætlað er börnum og ýmis verðlaun í einstökum undirflokkum.

Vörur MS unnu til fimm gullverðlauna, 13 silfurverðlauna og 15 bronsverðlauna á sýningunni sem er haldin annað hvert ár. Þar keppa um 1.600 mjólkurvörur um verðlaun.


back to top