Hyggst virkja Skaftá og reisa fóðurverksmiðju

Virkjun Skaftár í landi Skálar á Síðu er á teikniborðinu og stefnt að því að framkvæmdir fari á fullt á næsta ári. Samhliða er áformað að reisa fóðurverksmiðju fyrir fiskeldi, sem nýti orkuna.
Skaftá er í röð tíu vatnsmestu fljóta landsins en nú þegar hugmyndir, um að veita henni úr farvegi sínum á hálendinu vestur yfir til Tungnár- og Þjórsárvirkjana, virðast úr sögunni er eigandi Skálar, Þórarinn Kristinsson, langt kominn með undirbúning að virkjun hennar við bæinn. Hann segir stefnt að 4 megavatta rennslisvirkjun og rannsóknir, teikningar og leyfi séu komin vel af stað.

Fyrir Skaftárelda 1783 var Skál talin ein besta bújörð á Íslandi. Eldhraunið stórspillti hins vegar jörðinni, tók af víðfeðmar engjar, og færði Skaftá upp að fjallsrótum. Hefðbundnum búskap var hætt á Skál fyrir um 20 árum. Síðan hefur hún verið frístundajörð, lengst af í eigu fjögurra lækna, en Þórarinn keypti hana fyrir fjórum árum.


Hann hyggst stífla Skaftá neðan við bæinn og veita henni í hundrað metra löngum göngum í gegnum höfða sem skagar út í ána. Vélasamstæður komi til með að vera rúmt ár í framleiðslu og vonast hann til orkuframleiðsla hefjist árið 2011.


Hann býst ekki við mikilli andstöðu. Hann segir að virkjuninni fylgi engin uppistöðulón enda verði hún rennslisvirkjun. Hún verði bara til að bæta svæðið.


Faðir hans, Kristinn í Björgun, var frumkvöðull í fiskeldi með stöð sinni í Tungu í Landbroti og nú vonast Þórarinn til að fóðurverksmiðja fyrir lax og bleikju verði risin í sveitinni árið 2012. Hráefnið verði afgangar eins og afskurður og fiskislóg.


Honum svíður að sjá fólksfækkunina. Það sé líka alvarlegt að meðalbóndi á svæðinu sé tíu árum eldri en annarsstaðar á landinu. Þetta sé skelfilegt og þessvegna sé nauðsynlegt að efla atvinnulíf í sveitinni. Þar séu gríðarleg tækifæri og þau verði að nýta.


back to top