Hefði líklega verið gott að eiga ennþá áburðarflugvél

Hreinsunarstarf á þeim bæjum þar sem öskufall varð mest er í fullum gangi. Vagn Kristjánsson lögreglumaður hefur yfirumsjón með hreinsunarstarfinu. Hann segir að því er fram kemur á mbl.is aðkomuna á bæjunum ekki jafnsvarta og áður enda hafi slökkviliðsmenn vatnshreinsað húsin. Þá hafi sveitarfélagið beitt vinnuvélum við að skafa heimreiðar og bæjarhlöð.

Vagn segir að enn sé verið að meta stöðuna og skipuleggja starfið. Hann ráðleggur þeim sem vilja hjálpa til við hreinsun að mynda hópa og senda hjálparboð á netfangið sveitin@hvolsvollur.is.


Elvar Eyvindsson, sveitarstjóri og bóndi á Skíðbakka í Austur-Landeyjum, segir á mbl.is að brúnin sé að léttast á fólki. „Þetta er ekki eins svart og þegar fólk var statt inni í svartasta mekkinum. Þegar léttir til þá léttist lundin. Að ekki sé talað um þegar svona margir vilja hjálpa til við að þrífa burtu mesta ófögnuðinn.“ Hann segir að ekki sé enn búið að skoða heiðar og afrétt. „Landgræðslan mun líklega koma að því. Það hefði líklega verið gott að eiga ennþá áburðarflugvél.“


back to top