Haustfundur BSSL í sauðfjárrækt – Smyrlabjörg

Haustfundur í sauðfjárrækt verður haldinn mánudaginn 20. nóvember kl. 13.30 að Smyrlabjörgum.  Hrútaskráin 2017 verður vonandi komin í hús, en í henni eru lýsingar á hrútunum skrifaðar af sauðfjárráðunautum RML, ritstjóri eins og undanfarin ár er Guðmundur Jóhannesson.

Fyrirlesarar frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins lýsa kostum hrútanna og ræða ræktunarstarfið.  Kaffiveitingar verða í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands og verðlaun sem veitt verða fyrir bestu lambhrútana eru gefin af Fóðurblöndunni og verðlaun fyrir bestu Blup hrútana gefa Jötunn vélar.  Vonandi sjá sem flestir áhugamenn um sauðfjárrækt sér fært um að mæta og bændur hvattir til að vera duglegir að nýta sér kosti sæðinganna til að kynbæta fé sitt.

 

 


back to top