Haustfundir BSSL 2017 í sauðfjárrækt

Hrútafundir eða haustfundir í sauðfjárrækt fara að bresta á og þá er verður Hrútaskráin 2017 vonandi komin í hús, en í henni eru lýsingar á hrútunum skrifaðar af sauðfjárráðunautum RML, ritstjóri eins og undanfarin ár er Guðmundur Jóhannesson.  Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

Mánudagur 20. nóvember Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum kl. 13:30
Mánudagur 20. nóvember Icelandair Hótel Klaustur, Kirkjubæjarklaustri kl. 20.00
Þriðjudagur 21 .nóvember Hótel Smáratún í Fljósthlíð kl. 13:30
Þriðjudagur 21. nóvember í Félagslundi Flóahrepp kl. 20:00

Fyrirlesarar frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins lýsa kostum hrútanna og ræða ræktunarstarfið.  Kaffiveitingar verða í boði Sláturfélags Suðurlands og Búnaðarsambands Suðurlands og verðlaun sem veitt verða fyrir bestu lambhrútana eru gefin af Fóðurblöndunni og verðlaun fyrir bestu Blup hrútana gefa Jötunn vélar.  Vonandi sjá sem flestir áhugamenn um sauðfjárrækt sér fært um að mæta og bændur hvattir til að vera duglegir að nýta sér kosti sæðinganna til að kynbæta fé sitt.

 

 


back to top