Fóðurblandan fær mikla skuldalækkun

Eigendur Fóðurblöndunnar hafa lagt fyrirtækinu til 600 milljónir í aukið hlutafé. Jafnframt hafa skuldir fyrirtækisins verið lækkaðar niður í um tvo milljarða, en fyrirtækið skuldaði rúmlega 5,1 milljarð í árslok 2008.
Stærsti eigandi Fóðurblöndunnar er Kaupfélag Skagfirðinga með yfir 70% hlut og Auðhumla með um 18% hlut. Auðhumla, sem á og rekur Mjólkursamsöluna, keypti árið 2006 hlut í Fóðurblöndunni. Skiptar skoðanir eru meðal bænda um hvort félagið eigi að taka þátt í rekstri fóðurfyrirtækja. Félagið taldi hins vegar að það yrði að reyna að verja eign sína með því að leggja Fóðurblöndunni til aukið eigið fé.

Fóðurblandan tapaði árið 2008 um 1,9 milljörðum, aðallega vegna gengistaps. Skuldir fyrirtækisins námu í lok þess árs rúmlega 5,2 milljörðum. Stærsti lánardrottinn fyrirtækisins er Arion banki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru skuldir bankans lækkaðar um yfir tvo milljarða með þeirri fjárhagslegu endurskipulagningu sem gerð var samhliða hlutafjáraukningu. Félagið telst nú vera rekstrarhæft.


Stærsti samkeppnisaðili Fóðurblöndunnar er Lífland. Fyrirtækið skuldaði í árslok 2008 um 2,3 milljarða.


Morgunblaðið 10. mars 2010, Egill Ólafsson egol@mbl.is
 


back to top