Fjallalamb með upprunamerkingu sauðfjárafurða

Fjallalamb hf. og Strikamerki hf. hafa nú þróað upprunakerfi sem upplýsir neytendur hvaðan afurðir Fjallalambs koma.
Neytandinn kaupir 1/2 skrokk í kassa, les á merkimiða sem límdur hefur verið á kassann og getur síðan farið inn á www.fjallalamb.is smellt á upprunamerkingu og skoðað síðan mynd af bæ viðkomandi framleiðenda ásamt upplýsingum um ábúendur. Númer framleiðenda er fjögurra stafa númer sem kemur fram á miðanum. Einnig kemur fram á þessum miða einstaklingsnúmer lambsins ásamt sláturdagsetningu.

Fjallalamb mun í fyrstu einungis selja þessar upprunamerktu afurðir í 1/2 skrokkum en stefna fyrirtækisins er sú að sem flestar vörur frá Fjallalambi  verði upprunamerktar. Þetta mun færa kaupendur nær framleiðendum þess kjöts sem þeir neyta.


Þessar vörur munu verða til hjá flestum söluaðilum afurða  frá Fjallalambi.


back to top