Efsti lambhrútur landsins

Lambhrúturinn Óskar 26-400 Dísarstöðum í Árborg hlaut 93,5 stig í lambhrútaskoðunum  og stóð efstur yfir landið allt og jafnframt er þetta hæsti dómur sem lambhrútur hefur fengið hingað til yfir landið. Hann hlaut 10,0 fyrir háls og herðar, bringu og útlögur og bak. 9,5 fyrir malir og samræmi. Í læraeinkunn hlaut hann 20,0 og 8,5 fyrir ull. Hann var 58 kg á fæti með 40 mm í bakvöðva, 5,0 fyrir lögun bakvöðva. Hann er undan Galdri 25-083 frá Brúnastöðum sem er sonur Falds 23-937 frá Ytri Skógum og í móðurætt má finna Viðar 17-844 frá Bergsstöðum og Sudda 17-872 frá Skarðaborg. Á myndinni má sjá ræktandann Hannes Ottesen Dísarstöðum með hrútinn Óskar 26-400


back to top