Burður og burðarhjálp

Námskeið í burðarhjálp verður haldið á Stóra Ármóti næstkomandi þriðjudag, þann 6. október. Námskeiðið er haldið á vegum endurmenntunardeildar Landbúnaðarháskólans og kennari er Grétar Hrafn Harðarson, dýralæknir og tilraunastjóri á Stóra-Ármóti.

Eins og kúabændur vita er hlutfall dauðfæddra kálfa á bilinu 13-14% á íslenskum kúabúum. Hlutfallið er óásættanlegt og er bændum og stéttinni í heild afar dýrt. Markmið námskeiðsins er að gera bændur hæfari í að taka réttar ákvarðanir þegar kemur að burði og burðaraðstoð hjá kúm. Á námskeiðinu verður farið yfir undirbúning kýrinnar fyrir burð, helstu sjúkdóma kringum burð, eðlilegt burðarferli, burðarerfiðleika, burðarhjáp og meðferð ungkálfa.

Staður og stund: Þri. 6. október kl. 13:00-17:00 á Tilraunabúi LBHÍ – Stóra Ármóti í Flóa.
 
Verð: 8.500 kr


Skráningar:  endurmenntun@lbhi.is eða í síma 433 5000/ 843 5302


Staðfestingargjald: Staðfesta þarf skráningu með því að millifæra 2.500 kr (óafturkræft) á reikninginn 1103-26-4237, kt. 411204-3590. Skrá nafn þátttakanda í skýringar og senda kvittun á endurmenntun@lbhi.is


Námskeiðshaldarar minna á Starfsmenntasjóð bænda – www.bondi.is


back to top