Afleysingar á gossvæðinu hefjast 5. júlí n.k.

Afleysingar á áhrifasvæði eldgossins í Eyjafjallajökli á vegum Búnaðarsambandsins, Bændasamtaka Íslands og Félags kúabænda á Suðurlandi hefjast þann 5. júlí n.k. Þeir bændur sem hug hafa á að nýta sér hana eru beðnir að hafa samband við Svein Sigurmundsson hjá Búnaðarsambandinu í síma 480 1800 eða netfang sveinn@bssl.is. Markmiðið með aflyeingaþjónustunni er að bændafjölskyldur geti tekið sér frí frá bústörfum í 2-7 daga í senn. Afleysingaþjónustan er fjármögnuð með m.a. styrktarfé sem norskir bændur öfluðu.


back to top