Aðbúnaður dýra í íslenskum landbúnaði

Í kvöld, þriðjudagskvöldið 26. apríl kl. 20:00, verður haldið málþing í Norræna húsinu um aðbúnað dýra í íslenskum landbúnaði og þeirri spurningu varpað fram hvort tími sé kominn til að breyta setningunni; „þú ert það sem þú borðar“ í „umhverfið er það sem við borðum“? Tilefni málþingsins er sýningin Manna – annars konar sýning um mat sem nú stendur yfir í Norræna húsinu. Sýningin fjallar um tengsl fæðu og umhverfis.
Í tilkynningu frá Norræna húsinu segir að þörf umræða hafi sprottið upp um ýmsa vankanta á aðbúnaði og velferð dýra íslenskum landbúnaði og jafnframt er spurt hvers vegna umræðan hafi orðið svona hávær að undanförnu? Er virkilega farið illa með þau dýr sem eru á boðstóli íslenskra neytenda? Hvað veldur þessum slæma aðbúnaði?

Dagskrá:
Sjónarmið neytenda – Linda Pétursdóttir
Ódýr matur, dýrkeypt blekking – Dr. Ólafur R.Dýrmundsson frá Dýraverndarsambandi Íslands
Velferð dýra – Sif Traustadóttir, dýralæknir og stjórnarmaður í Velbú
Aðgangur að lífrænu hráefni – Oddný Anna Björnsdóttir


Pallborð eftir erindin:
Frummælendur, Kristján Oddsson bóndi á Neðra- Hálsi í Kjós og Geir Gunnar Geirsson frá Stjörnugrís hf.


back to top