Vel heppnaðir hrútafundir

Dagana 19. til 20. nóvember voru hinir svokölluðu hrútafundir haldnir. Það mættu 100 manns í Félagslund í Flóa, 30 manns í Kirkjuhvol á Klaustri og 83 mættu að Smyrlabjörgum sem um leið var kóttilettukvöld í boði Búnaðarsambands Austur Skaftafellssýslu. Alls voru þetta ríflega 200 manns sem mættu á fundina. Ráðunautar RML komu á fundinn, Árni Bragason kynnti hrútana og fór yfir helstu atriði ræktunarstarfsins ásamt Eyþóri Einarssyni. Fanney Ólöf Lárusdóttir kynnti og lýsti 5 efstu lambhrútunum í hverri sýslu. Verðlaunaplattar voru í boði Fóðurblöndunar og kaffiveitingar í boði Sláturfélagsins. Myndin er af fundinum í Félagslundi.

Follow




