Huppa frá Kluftum 100 ára

Það eru 100 ár frá fæðingu Huppu frá Kluftum þriðjudaginn 3. nóvember. Í tilefni af því standa Búnaðarsamband Suðurlands, Hrunamannahreppur og Nautgriparæktarfélag Hrunamanna fyrir málþingi og afmælisfagnaði í félagsheimilinu á Flúðum. Málþingið hefst kl. 11.00 og áætlað er að það standi til kl. 15.20 en endar á kaffisamsæti. Þar verður fjallað um þau miklu áhrif sem Huppa hefur haft á íslenska nautgriparækt en auk þess verða flutt erindi um Kluftir, Huppuhornið, Helga á Hrafnkelsstöðum, kúaliti og kúanöfn.
Málþingið og afmælisfagnaðurinn er öllum opinn og áhugamenn um nautgripi og nautgriparækt sérstaklega velkomnir og ættu ekki að láta þennan viðburð fram hjá sér fara. Dagskráin fylgir hér með.

Follow




