
| 25.5.2010 15:05 Jarðræktartilraunir á Stóra-Ármóti Landbúnaðarháskólinn á Hvanneyri og Búnaðarsamband Suðurlands eru í samstarfi með áburðartilraunir sem hér segir:Dreifingartími á mykju: Mánuðina október til maí er dreift mykju, venjulega fyrstu daga hvers mánaðar. Þrír reitir eru með hvern dreifingartíma. Til að meta áhrifin eru einnig reitir sem fá mismunandi tilbúinn áburð (mismunandi magn af N, P og K) á venjulegum tíma. Það er einkum N sem skiptir máli í þessu sambandi, og því eru viðmiðunarskammtar margir, 0, 25, 60, 100, 125 og 150 kg N/ha. Fyrir P og K eru annarsvegar reitir án þessara efna og hins vegar með 20 kg P/ha og 80 kg K/ha. Lesa meira... |
| 30.3.2010 08:57 Aðalfundur Nautgriparæktarfélags Hraungerðishr. og Ölfuss Stóra Ármót afurðahæsta búið í félaginu árið 2009 Aðalfundur Nautgriparæktarfélags Hraungerðishr. og Ölfuss var haldinn á Stóra Ármóti í gær. Fundurinn var með hefðbundnu sniði. Bjarni Stefánsson, formaður, fór yfir störf félagsins á liðnu ári en að því loknu fór Guðmundur Jóhannesson, nautgriparæktarráðunautur Búnaðarsambandsins, yfir niðurstöður skýrsluhalds liðins árs og reynd naut í notkun. Þá fór hann líka yfir hverning bændur getur nýtt sér niðurstöður úr tanksýnum. Hann fór svo að endingu yfir kúadóma en þá voru skoðaðar nokkrar kýr inni í fjósi.Lesa meira... |
| 22.3.2010 14:00 Vel á þriðja hundrað manns komu á opinn dag á Stóra Ármóti Síðasta föstudag, 19. mars, var opinn dagur á Tilraunabúinu á Stóra Ármóti þar sem gestum og gangandi var boðið að koma og skoða tilraunafjósið og kynna sér starfsemina. Dagurinn heppnaðist mjög vel og mættu vel á þriðja hundrað manns á svæðið. Auk kynningar á starfsemi Tilraunabúsins kynnti Búnaðarsambandið m.a. túnkortagerð, Bændasamtök Íslands kynntu gagngrunnana huppa.is og jord.is auk fóðuráætlanagerðar með NorFor. Landbúnaðarháskóli Íslands var með kynningu á tilraunastarfi. Þá var farið yfir kúadóma og sýndur klaufskurður í klaufskurðarbás Kynbótastöðvarinnar. Lesa meira... |
| 3.3.2010 15:48 Opið fjós á Stóra Ármóti Föstudaginn 19. mars n.k. frá kl. 13.30 til kl. 17.00 verður opið fjós hjá Tilraunabúinu á Stóra Ármóti þar sem gestum og gangandi gefst kostur á að skoða aðstöðuna og fræðast um starfsemi búsins. Kynntar verða ýmsar tilraunaniðurstöður, sagt frá tilraunum í gangi og undirbúningi. Þá mun Kynbótastöð Suðurlands sýna klaufskurð og boðið verður upp á sýnikennslu í kúadómum.MS verður með vörukynningu á staðnum og mun m.a. kynna nýja íþróttadrykkinn, Hleðslu. Lesa meira... |
| 26.1.2010 08:31 Ágæt afurðaaukning á árinu 2009 Niðurstöður úr skýrsluhaldi nautgriparæktarinnar hafa nú verið birtar og ekki er hægt að segja annað en að mjólkurframleiðslan hér á Stóra Ármóti hafi gengið vel á síðasta ári. Meðalnyt eftir árskú jókst milli ára, úr 6.321 kg í 6.529 kg. Þetta eru næst mestu afurðir sem náðst hafa á Stóra Ármóti. Fituinnihald í innleggsmjólk hækkaði úr 3,99% í 4,15% og próteininnihaldið stóð nánast í stað, lækkaði úr 3,45% í 3,44%. Afurðir í verðefnum jukust því um 37 kg milli ára eða í 496 kg MFP/árskú.Lesa meira... |
| 18.12.2009 10:27 Kvígur24 – nú frjáls aðgangur að sýrðri mjólk Meðal burðaraldur hjá fyrsta kálfs kvígum er nú rúmir 28 mánuðir. Samkvæmt hagfræðilegum útreikningum er talið betra að kvígur beri yngri eða u.þ.b. 24 mánaða gamlar. Til þess að svo geti orðið þarf þó hver dagur í uppeldi að nýtast markvisst til vaxtar og þroska. Mikill breytileiki er í fóðrun og meðferð kálfa og kvígna á Íslandi og víða er vaxtargetan vannýtt. Meginmarkmið verkefnisins Kvígur24 er að finna hvaða fóðursamsetning á hinum ýmsu stigum uppeldisins þ.á.m. frjáls aðgangur að sýrðri mjólk, nýti vaxtargetu gripanna best án þess þó að það leiði til óhóflegrar holdsöfnunar. Einnig að þróa þessa fóðrunaraðferð sem vænlegan kost við uppeldi kálfa. Lesa meira... |
| 27.10.2009 09:07 Slátrun lokið á Stóra Ármóti Í gær lauk slátrun á Stóra Ármóti þetta haustið. Alls var slátrað 68 dilkum sem er 16 dilkum færra en í fyrra. Meðalfallþungi reyndist vera 17,1 kg eða 0,4 kg meiri en árið áður. Þrátt fyrir það kom flokkun eilítið lakar út.Lesa meira... |
| 8.10.2009 12:43 Bústórahúsið á Stóra-Ármóti endurnýjað Framkvæmdum við bústjórahúsið á Stóra-Ármóti er nú lokið en það hefur fengið verulega andlitslyftingu. Húsið sem byggt var árið 1950 þarfnaðist orðið verulegs viðhalds að utan og hafa framkvæmdir staðið yfir frá síðastliðnu hausti. Mest var unnið í framkvæmdinni á liðnum vetri en endanlega var lokið við alla vinnu utanhúss nú í sumar.Lesa meira... |
| 14.9.2009 10:28 Fjárrag á Stóra-Ármóti Miðvikudaginn 9. september s.l var féð á Stóra-Ármóti rekið saman úr úthaganum og lömb valin til slátrunar og ásetnings. Sauðfjárræktarráðunautar Bssl og aðrir starfsmenn hauststarfanna í sauðfjárrækt mældu og stiguðu lömbin. Þetta er einn liður í því að samræma vinnubrögðin fyrir haustið. Nokkur lömb voru stiguð og valin til nánari skoðunar í sláturhúsi SS á Selfossi daginn eftir, en þangað mættu líka ráðunautar frá Búvest, Jón Viðar frá Bændasamtökum Íslands og Stefán Vilhjálmsson frá yfirkjötmatinu. Í sláturhúsi SS voru lömbin stiguð á fæti og skrokkarnir síðan skoðaðir í kjötsalnum. Lesa meira... |
| 3.9.2009 10:45 Stóra-Ármót hlýtur umhverfisverðlaun Flóahrepps 2009 Umhverfisnefnd Flóahrepps hefur ákveðið að önnur tveggja umhverfisverðlauna ársins 2009 skuli falla í hlut Tilraunabúsins á Stóra-Ármóti. Veitt eru verðlaun í tveimur flokkum, annars vegar „Heimili“ og hins vegar „Fyrirtæki/stofnanir“ og fellur Stóra-Ármót undir seinni flokkinn. Alls bárust nefndinni ábendingar um ellefu aðila þar sem snyrtimennska og vel hirt umhverfi þykir bera af og vera sveitarsómi og er þetta niðurstaða umhverfisnefndar eftir skoðun á öllum tilnefningunum.Lesa meira... |