
| 28.3.2012 10:46 Ársskýrsla 2011 komin á vefinn Ársskýrsla Stóra-Ármóts er komin á vefinn hjá okkur. Hana er að finna undir "Um Stóra Ármót" í valröndinni hér vinstra megin. Hlekkur á Ársskýrsluna birtist þá í "Áhugavert" hægra megin á síðunni.Lesa meira... |
| 9.11.2011 11:44 Líf og fjör á Stóra Ármóti Það er líf og fjör á Stóra Ármóti þessa dagana og fyrirlestrarsalurinn á staðnum vel nýttur. Í dag eru 26 manns á gæðastýringarnámskeiði í sauðfjárrækt og á föstudaginn verður opinn dagur þar sem starfsemi tilraunabúsins, Búnaðarsambandsins, Landbúnaðarháskólans og ýmissa þjónustufyrirtækja landbúnaðarins verður kynnt. Auk þess verða sýndir búfjárdómar, klaufskurður, rúningur o.fl.Lesa meira... |
| 26.10.2011 11:26 Viðunandi kornuppskera í haust Kornslætti lauk á Stóra Ármóti í byrjun október en alls voru þresktir 16,5 ha. Uppskera var viðunandi eða 3,8 tonn/ha. miðað við 85% þurrefni. Heildaruppskera nam því 62,7 tonnum af 85% þurru byggi.Kornið var allt sýruverkað og reyndist kostnaður á hvert kg korns vera 35 kr. Stærstu einstöku kostnaðarliðirnir eru sýra til íblöndunar sem kostar rúmar 9 kr/kg korns, áburður og skeljasandur 8,2 kr/kg korns og sáðkorn 7,7 kr/kg korns. Þær 10 kr/kg sem eftir standa fara síðan að mestu í jarðvinnslu og þreskingu. Lesa meira... |
| 21.10.2011 12:02 Fallþungi 0,3 kg minni en í fyrra - fitan mun minni Í gær var síðustu lömbunum á Stóra Ármóti lógað þetta haustið. Að þessu sinni voru send 20 lömb í SS á Selfossi og reyndist meðalfallþungi þeirra vera 14,2 kg, meðaleinkunn fyrir gerð 8,30 og fyrir fitu 6,20. Í haust er því alls búið að farga 88 lömbum og er meðalfallþungi þeirra 15,7 kg sem er 0,3 kg minni fallþungi en í fyrra.Lesa meira... |
| 4.10.2011 15:14 Markmið að þróa ódýra aðferð við mjólkurgjöf sem uppfyllir markmið um vöxt og þroska Á Stóra Ármóti hefur ætíð verið lögð áhersla á hagnýtar rannsóknir og jafnan valin viðfangsefni sem tengjast vandamálum eða verkefnum nautgriparæktarinnar hverju sinni. Síðasta áratuginn má m.a. nefna verkefni tengd efnainnihaldi mjólkur, efnaskiptasjúkdómum og fóðrun um burð, fóðrun með miklu byggi og uppeldisrannsóknir. Jarðræktarrannsóknir hafa einnig jafnan skipað veglegan sess í starfi Stóra Ármóts. Ríkharð Brynjólfsson hefur unnið að rannsóknum á nýtingu búfjáráburðar undanfarin ár og Guðni Þorvaldsson hefur verið með umfangsmiklar samanburðarrannsóknir á lífsþrótti hinna ýmsu grastegunda og yrkja. Það markverðasta úr rannsóknunum 2011 er að öll yrki vallarfoxgrass, sem voru skoðuð, þrífast vel á Stóra Ármóti á meðan fjölært rýgresi á mjög í vök að verjast. Lesa meira... |
| 4.10.2011 14:51 Gott gengi í fjósinu Vel hefur gengið í fjósinu undanfarið ár. Afurðir eftir árskú liggja í um 6.800 kg og efnahlutfall hefur verið gott bæði hvað varðar fitu og prótein, sjá töflu. Ársnytin er um 1.500 kg meiri á árskú á Stóra Ármóti en á meðalbúi, sem skilar auknum tekjum upp á tæpar 5 milljónir á ári m.v. 42 árskýr. Afurðastöðvarverð miðast við efnainnihald og eru tekjur Stóra Ármóts vegna þess um 850 þús. krónur umfram bú með sömu framleiðslu en með efnainnihald skv. meðaltali samlags. Flokkun mjólkur hefur einnig verið mjög góð fyrstu 8 mánuði ársins.Lesa meira... |
| 15.9.2011 09:16 Mun minni uppskera en í fyrra Sláttur hófst nokkru seinna í ár en undanfarin ár eða 26. júní. Mun minna var á og skýrist það að hluta af árferði og nýræktum sem ekki eru komnar í full afköst, en ekki síður af auknum ágangi álfta og gæsa í túnin, sjá töflu. Þegar þetta er skrifað er eftir að slá 13,5 ha nýrækt og má áætla að 70 rúllur fáist af henni. Fyrstu niðurstöður heyefnagreininga gefa til kynna að um einsleitan og góðan heyfeng sé að ræða og betri en reiknað var með. Sáð var korni í um 17 ha. Kornið er greinilega seinna í ár en við höfum mátt venjast og því nokkur óvissa um uppskeru þegar þetta er skrifað.Lesa meira... |
| 12.9.2011 15:24 Niðurstöður áburðartilrauna 2010 Niðurstöður áburðartilrauna og athugunar með niðurfellingur mykju 2010 eru nú komnar á vefinn undir "Tilraunir > Niðurstöður tilrauna". Um var að ræða tilraun með mismundandi dreifingartíma mykju og mismunandi áburðarskammta á tún.Lesa meira... |
| 12.9.2011 13:23 Fallþungi ívið meiri en í fyrra Í síðustu viku, nánar tiltekið þann 7. sept., fóru 68 lömb frá Stóra Ármóti í sláturhús. Flokkun var með ágætum og fallþungi sömuleiðis miðað við að þetta er frekar snemmt og lömbin höfðu ekki verið bötuð á grænfóðri. Meðalfallþungi reyndist vera 16,2 kg samanborið við 15,99 kg á sama tíma í fyrra. Einkunn fyrir gerð var þrátt fyrir ívið meiri fallþunga heldur lakari en í fyrra. Þannig var gerðareinkunn nú 8,88 en 9,03 í fyrra. Hins vegar var fitan mun minni en í fyrra og reyndist og einkunn fyrir fitu vera 5,65 samanborið 6,08 í fyrra.Lesa meira... |
| 18.3.2011 15:28 Aðalfundur Nautgriparæktarfélags Hraungerðishr. og Ölfuss Stóra Ármót afurðahæst í félaginu á árinu 2010 Aðalfundur Nautgriparæktarfélags Hraungerðishr. og Ölfuss var haldinn á Stóra Ármóti í dag. Fundurinn var með hefðbundnu sniði. Bjarni Stefánsson, formaður, fór yfir störf félagsins á liðnu ári en að því loknu fór Guðmundur Jóhannesson, nautgriparæktarráðunautur Búnaðarsambandsins, yfir niðurstöður skýrsluhalds liðins árs og ýmsa þætti í nautgriparæktarstarfinu.Á fundinum voru afhent verðlaun fyrir afurðahæsta búið og kúna í félaginu. Afurðahæsta búið var Tilraunabúið á Stóra Ármóti með 6.972 kg mjólkur á árskú og 532 kg verðefna. Þetta er áttunda árið í röð sem búið á Stóra Ármóti státar af mestum afurðum í félaginu. Lesa meira... |