
Árangur sæðinga 2009
Dagbók f. sauðfjársæðingar
Frjósemi, sæðingar og meðganga - kafli úr kennslubók LbhÍ í sauðfjárrækt 
Hvernig þíða á fryst hrútasæði
Meðhöndlun sæðis
Skráning og uppgjör sæðinga
Merki (lógó) SSL
|
|
|
|
|
Sauðfjársæðingastöð Suðurlands gefur árlega út hrútaskrá þar sem birtar eru lýsingar á þeim ásamt fyrirliggjandi upplýsingum um reynslu þeirra. Skráin er litprentuð og í henni eru litmyndir af hverjum hrút. Síðustu ár hefur stöðin haft samstarf við Sauðfjársæðingastöð Vesturlands um þessa útgáfu og því er í raun um að ræða landshrútaskrá. Hrútaskráin er einnig birt undir heimasíðu Búnaðarsambands Suðurlands undir sauðfjárrækt, m.a. á pdf-formi. Vanti þig hrútaskrána þá skaltu senda okkur póst á netfangið bssl@bssl.is með upplýsingum um nafn og heimilisfang. Við munum þá senda þér skrána um hæl. |
|
|
Leitast hefur verið við að hafa fjölbreytt úrval hrúta, bæði hyrndra og kollótta þar sem megin áherslur eru á kjötgæði en einnig er tekið tillit til frjósemi og mjólkureiginleika dætra og nú seinni árin hafa áherslur á ullareiginleika farið vaxandi. Á stöðinni er einnig að finna forystuhrút og mislita hrúta. Árangur hefur verið nokkuð misjafn milli búa en í heild er um 72% ánna sem festa fang sem á alþjóðamælikvarða verður að teljast nokkuð gott. Sæðistaka hefst í nóvember og er þá tekið sæði til frystingar. Sæðingar með fersku sæði hefjast um mánaðmót nóv./des. og standa fram undir jól. Sæðispantanir eru í síma 482 1920 þegar sæðistaka er hafin en annars í síma 480 1800. Fax er 480 1818. Einnig má senda póst á netfangið bssl@bssl.is . |