
Nánar
Eigendur Fóðurblöndunnar hafa lagt fyrirtækinu til 600 milljónir í aukið hlutafé. Jafnframt hafa skuldir fyrirtækisins verið lækkaðar niður í um tvo milljarða, en fyrirtækið skuldaði rúmlega 5,1 milljarð í árslok 2008. Fóðurblandan tapaði árið 2008 um 1,9 milljörðum, aðallega vegna gengistaps. Skuldir fyrirtækisins námu í lok þess árs rúmlega 5,2 milljörðum. Stærsti lánardrottinn fyrirtækisins er Arion banki. Samkvæmt heimildum Morgunblaðsins voru skuldir bankans lækkaðar um yfir tvo milljarða með þeirri fjárhagslegu endurskipulagningu sem gerð var samhliða hlutafjáraukningu. Félagið telst nú vera rekstrarhæft.
Stærsti samkeppnisaðili Fóðurblöndunnar er Lífland. Fyrirtækið skuldaði í árslok 2008 um 2,3 milljarða.
Morgunblaðið 10. mars 2010, Egill Ólafsson egol@mbl.is