
Nánar
Samkvæmt gildandi reglum um gæðastýrt skýrsluhald geta skýrsluhaldarar sem féllu út af fyrsta ársfjórðungi vegna seinna skila, komið aftur inn í gæðastýrt skýrsluhald á öðrum ársfjórðungi. Eina skilyrðið er að menn hafi sent inn kýrsýni á fyrsta ársfjórðungi. Til þess að eiga möguleika á að fá hlutdeild í greiðslum annars ársfjórðungs þurfa skýrsluhaldarar að vera búnir að vinna upp öll vanskil og skila janúar 2010 fyrir 11. febrúar 2010./GEH