
| 10.3.2010 15:37 Framkvæmdastjóri LK gerir athugasemdir við yfirlýsingu FB Landssamband kúabænda vísar fráleitum ásökunum Fóðurblöndunnar á bug. Allra nauðsynlegra upplýsinga vegna þessa var leitað hjá Landgræðslunni og Ríkiskaupum, um magn áburðar í útboðinu, efnainnihald, vsk. og greiðsluskilmála. Það sætir furðu ef bæði fyrirtækin sem skiluðu inn tilboðum í áburðarkaup Landgræðslu ríkisins, virðast hafa gert sömu mistökin. Mismunurinn á tilboðsverði og verði til bænda er amk. í báðum tilfellum óeðlilega mikill.Lesa meira... |
| 10.3.2010 15:35 Fréttatilkynning Yfirlýsing frá Fóðurblöndunni vegna áburðarverðs Við innfærslu á tilboðsgerð vegna útboðs áburðakaupa Landgræðslunnar og Vegagerðarinnar urðu starfsmanni Fóðurblöndunnar á þau mistök að setja áburðarverð fram án virðisaukaskatts eins og alltaf hefur tíðkast við þessi útboð, en sú breyting varð að nú áttu þau að vera verð með virðisaukaskatti. Tilkynnt var um málið til útboðsaðila um leið og málið uppgötvaðist og er áfram unnið í málinu.Lesa meira... |
| 10.3.2010 15:31 Fóðurblandan fær mikla skuldalækkun Eigendur Fóðurblöndunnar hafa lagt fyrirtækinu til 600 milljónir í aukið hlutafé. Jafnframt hafa skuldir fyrirtækisins verið lækkaðar niður í um tvo milljarða, en fyrirtækið skuldaði rúmlega 5,1 milljarð í árslok 2008. Stærsti eigandi Fóðurblöndunnar er Kaupfélag Skagfirðinga með yfir 70% hlut og Auðhumla með um 18% hlut. Auðhumla, sem á og rekur Mjólkursamsöluna, keypti árið 2006 hlut í Fóðurblöndunni. Skiptar skoðanir eru meðal bænda um hvort félagið eigi að taka þátt í rekstri fóðurfyrirtækja. Félagið taldi hins vegar að það yrði að reyna að verja eign sína með því að leggja Fóðurblöndunni til aukið eigið fé. Lesa meira... |
| 10.3.2010 15:24 77 kg risakálfur Í gær fæddist sannkallaður risakálfur á Ytri-Skógum undir Eyjafjöllum. Kálfurinn vóg 77 kg og var að sjálfsögðu tekinn með keisara enda varla á færi nokkurra kúa að bera slíku flykki. Lars Hansen, dýralæknir, aðstoðaði kálfinn, sem er kvíga, í heiminn. Kvígan lifði burðinn af og heilsast vel. Móðirin er Húfa 350 Trefilsdóttir 96006, móðir Húfs 07049, en hún var komin 35 daga fram yfir tal. Faðir kálfsins er Flói 02029.Lesa meira... |
| 10.3.2010 08:32 Skjálftavirknin í Eyjafjallajökli tók kipp í nótt Skjálftavirknin í Eyjafjallajökli tók aftur kipp í nótt og hviða smáskjálfta mældist milli kl. 03:40 og 05:20. Þá urðu nokkrir skjálftar um og yfir 2 stig, sá stærsti 2,6 stig. Alls hafa mælst á milli 270 og 280 skjálftar á þessu svæði frá miðnætti. Skjálftarnir mælast enn á sama dýpi og verið hefur eða 7-10 km.Lesa meira... |
| 9.3.2010 15:09 dkBúbót – framtalsuppfærsla væntanleg í lok næstu viku Gert er ráð fyrir því að uppfærsla á dkBúbót vegna skattframtals 2010 berist notendum dkBúbótar á geisladisk u.þ.b. viku eftir að vefframtal opnast á vef Ríkisskattstjóra. Uppfærslan mun því berast notendum í þriðju viku mars (17.-20. mars) gangi áætlanir eftir, en áætlaður opnunardagur vefframtals er 10. mars.Lesa meira... |
| 9.3.2010 15:01 Hagtölur landbúnaðarins 2010 Hagtölur landbúnaðarins 2010 eru komnar út. Eins og fyrri ár er útgáfan í bæklingsformi og er alls 30 síður. Í Hagtölum landbúnaðarins er m.a. hægt að finna tölfræði um landið og bóndann, bústofn og bústærð, landbúnaðarframleiðsluna, markaðsmál, verðlag og vísitölur o.m.fl. Bæklingurinn fer víða - hann er m.a. vinsæll á meðal ferðamanna, skólafólks og að sjálfsögðu á meðal þeirra sem starfa í landbúnaði.Lesa meira... |
| 9.3.2010 10:12 Námskeið í Árhúsm 15. mars: Mjaltaþjónar og bætt mjólkurgæði Við minnum á að enn eru laus sæti á námskeið um mjaltaþjóna og bætt mjólkurgæði. Full ástæða er fyrir kúabændur að láta þetta námskeið ekki fram hjá sér fara því á því verður m.a. fjallað um frjálsar fitusýrur í mjólk en um næstu áramót taka gildi verðskerðingarákvæði vegna of hárra frjálsra fitusýra í mjólk.Námskeiðið er haldið í samstarfi við Samtök afurðastöðva í mjólkuriðnaði og er ætlað bændum sem nota mjaltaþjóna. Lesa meira... |
| 8.3.2010 16:09 Mikil andstaða við Reykjavík sem landsmótsstað Stjórnir 26 hestamannafélaga hafa undiritað mótmælaskjal þar sem mótmælt er hvernig staðið var að vali á Reykjavík sem staðsetningu landsmóts hestamanna árið 2012. Alls eru 47 félög aðilar að Landssambandi hestamannafélaga (LH). Búið var að ákveða fund með Haraldi Þórarinssyni formanni LH 5. mars síðastliðinn þar sem afhenda átti mótmælaskjalið en Haraldur aflýsti þeim fundi að kvöldi 4. mars en boðaði til fundar 9. mars í staðinn. Hinn 5. mars skrifuðu Haraldur, forsvarsmenn Fáks í Reykjavík og fulltrúar Reykjavíkurborgar síðan undir samning um að landsmót skyldi haldið í Reykjavík. Lesa meira... |
| 8.3.2010 08:22 Dregur enn úr skjálftavirkni Dregið hefur úr skjálftavirkni undir Eyjafjallajökli. Almannavarnir munu mjög líklega aflétta viðbúnaðarstigi að sögn Steinunnar S. Jakobsdóttur, jarðeðlisfræðingi hjá Veðurstofunni. Mjög ólíklegt sé að þessari skjálftahrinu ljúki með gosi. Lesa meira... |