Haustfundir BSSL í sauðfjárrækt

Búnaðarsamband Suðurlands í samstarfi við RML, Sláturfélag Suðurlands, Fóðurblönduna og Jötunn vélar, heldur sína árlegu hrútafundir eða haustfundi í sauðfjárrækt á næstunni.  Þá verður Hrútaskráin 2019 komin í hús, þar sem ráðunautar RML lýsa kostum hrútanna. Fundirnir verða eins og undanfarin ár fjórir og mun Sláturfélag Suðurlands bjóða upp á kaffiveitingar og verðlaun veitt fyrir bestu lambhrútana, gefin af Fóðurblöndunni og verðlaun fyrir bestu Blup hrútana gefa Jötunn vélar.

Fundirnir verða haldnir sem hér segir:

Miðvikudagur 20. nóvember Hótel Smáratún, Fljótshlíð kl. 13:30
Miðvikudagur 20. nóvember Þingborg í Flóahrepp  kl. 20.00
Fimmtudagur 21 .nóvember í Ferðaþjónustan Smyrlabjörgum kl. 13:30
Fimmtudagur 21. nóvember í Icelandair Hótel Klaustur, Kirkjubæjarklaustri kl. 20:00

Árni Bragason frá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins lýsir kostum hrútanna og ræðir ræktunarstarfið.   Vonandi sjá sem flestir áhugamenn um sauðfjárrækt sér fært um að mæta og bændur hvattir til að vera duglegir að nýta sér kosti sæðinganna til að kynbæta fé sitt.

 

 

 


back to top