Námskeið í sauðfjársæðingum 1. des á Stóra Ármóti

Sauðfjársæðingarnámskeiðið er ætlað sauðfjárbændum og þeim sem hafa áhuga á að starfa eða starfa nú þegar við sauðfjársæðingar. Námskeiðið er bæði bóklegt og verklegt og er frá kl 13:00 og stendur fram eftir degi.

Í dag er lögð mikil áhersla á sæðingar með vernd­andi eða mögu­lega vernd­andi arf­gerðum gegn riðuveik. Því eru mikil tækifæri fólgin í því að endurmennta sig í sauðfjársæðingum með leiðsögn reynds dýralæknis og kennara

Á námskeiðinu er fjallað stuttlega um sögu sauðfjársæðinga. Æxlunarfærum sauðkinda er lýst og farið yfir helstu atriði varðandi æxlunarlíffræði þeirra. Einnig er fjallað um sæðingar, hvernig best er að standa að þeim, hvenær rétti sæðingatíminn er og hvað felst í samstillingu gangmála.

Kennd er meðferð sæðis og verklag við sæðingar í fjárhúsi. Þá er einnig rætt um smitvarnir.

Að námskeiði loknu eiga nemendur að geta sætt ær og metið hvernig bestum árangri verður náð.

KENNARI
Þorsteinn Ólafsson dýralæknir er kennari á námskeiðinu sem hefur áralanga reynslu af því að kenna sauðfjársæðingar í gegnum Endurmenntun LBHÍ og þar fer skráning á námskeiðið fram


back to top