Skil á haustskýrslum fyrir 20. nóvember

Matvælastofnun hefur opnað fyrir skráningar á haustskýrslum fyrir árið 2026 í Bústofni.
Í samræmi við 10. gr. laga um búfjárhald nr. 38/2013, er öllum umráðamönnum búfjár skylt að skila árlega rafrænni haustskýrslu í Bústofn, eigi síðar en 20. nóvember n.k.
Í haustskýrslunni skal koma fram fjöldi ásetts búfjár af hverri tegund, allt búfé í hagagöngu og á hvaða jörð eða landspildu.
Einnig skal koma fram gróffóðuruppskera af hefðbundnum nytjatúnum og leigutúnum ásamt fyrningum og upplýsingum.
Skila þarf haustskýrslu í Bústofn fyrir 20. nóvember 2026.

Follow




