Niðurstöður tilboða í Angus nautin hjá Nautís

Í dag voru opnuð tilboð í þau 6 Angus naut sem voru boðin til kaups hjá Nautís. Það bárust boð frá 10 rekstraraðilum og reyndist meðalverðið rúmar 2 milljónir í grip. Í fyrra var meðalverðið 1.587 þúsund í naut. Þá fara 3 naut að Hesti til sæðistöku og kyngreiningar á sæði og verða þau ekki seld núna. Nautin verða afhent næstu daga og um leið og nýjum eigendum er óskað til hamingju með gripina vonum við að þeir nýtist vel. Hér fyrir neðan er skjal sem sýnir hæsta tilboð í hvern grip

Tilboð


back to top