Útboð á Angus nautum

Í byrjun júlí verður útboð á 6 Angus nautum hjá Nautís, þremur nautum er fargað m.a. vegna galla í skapi, fótum og klaufum, en 3 önnur naut fara að Hesti til sæðistöku og kyngreiningar á sæði sem verður í október og verða þau ekki seld að svo stöddu. Upplýsingar um nautin koma í Bændablaðinu sem kemur út 25. júní. Skila þarf inn tilboðum í síðasta lagi 6. júlí og unnið verður úr tilboðunum 7. júlí. Eyðublöð og reglur verður að finna hér á síðunni. Engar kvígur eru boðnar til kaups að þessu sinni en 5 þeirra hafa verið fluttar yfir í kúafjósið til viðhalds en 4 kvígum er fargað vegna snúinna klaufa og framfóta og auk þess bera þær ófrjósemisgenið með sér

Follow




