Viðurkenning fyrir vel unnin störf

Á aðalfundi BSSL í Félagslundi 3. mars voru Runólfur Sigursveinsson og Gunnar Kr. Eiríksson heiðraðir fyrir vel unnin störf í þágu bænda. Runólfur hóf störf 1981 við Bændaskólann á Hvanneyri en þar sinnti hann uppfræðslu bændaefna. Til Búnaðarsambandsins kom hann í maí 1993 og starfaði til ársloka 2012 en þá fór hann yfir til RML þar sem hann sinnti rekstrarráðgjöf fram í ársbyrjun 2026. Hjá Búnaðarsambandinu þróaði hann ásamt fleirum ráðgjafaverkefnið Sunnu. Gunnar kom í stjórn BSSl árið 2008, varð formaður 2016 til 2026. Gunnar hefur gegnt mörgum trúnaðarstörfum fyrir bændur og m.a. setið á fjölda Búnaðarþinga og verið í stjórn BÍ og MBF í fjölda ára


back to top