Haraldur Ívar Guðmundsson Reykhóli nýr formaður Búnaðarsambands Suðurlands

Á aðalfundi Búnaðarsambandsins sem var í Félagslundi Flóa 3ja mars var kosið um stjórnarmenn úr Árnessýslu. Gunnar Kr Eiríksson sem hefur verið í stjórn frá 2008 og formaður frá árinu 2016 gaf ekki kost á sér til endurkjörs. Í stjórn voru kosnir Haraldur Ívar Guðmundsson Reykhóli og Páll Jóhannsson Núpstúni. Að aðalfundi loknum var haldinn stjórnarfundur þar sem stjórnin skipti með sér verkum. Haraldur Ívar Guðmundsson var kosin formaður, varaformaður Páll Eggertsson, ritari Gunnar Sigurjónsson og þau Hulda Brynjólfsdóttir, Magnús Örn Sigurjónsson og Páll Jóhannsson meðstjórnendur.


back to top