Bændasamtökin mæla með því að takmarka heimsóknir á bú

Bændasamtökin hafa fylgst náið með þróun mála vegna kórónuveirunnar sem nú herjar á landann og alla heimsbyggðina. Matvælastofnun hefur gefið út mikilvægar leiðbeiningar til bænda og annarra matvælaframleiðenda um það hvernig bregðast skuli við og lágmarka áhættu af sökum veirunnar. Ríkislögreglustjóri hefur lýst yfir neyðarstigi almannavarna í samráði við sóttvarnalækni og Embætti landlæknis vegna COVID-19

Í ljósi aðstæðna hvetja Bændasamtökin sína félagsmenn til þess að fylgjast náið með þróun mála og kynna sér allar tiltækar upplýsingar um kórónuveiruna og áhrif hennar á starfsemi bænda. Bændasamtökin mæla með því að heimsóknir á bú og samgangur á milli fólks sé í algjöru lágmarki. Nýtum fjarfundabúnað, tölvupóst og síma í samskiptum eins og hægt er. Þessar ráðstafanir eru til að sporna við veirusmiti á milli manna og tryggja hnökralausa búvöruframleiðslu.

Ekki er hætta á að fólk smitist með því að neyta matar og ekkert bendir til þess að kórónuveiran berist með matvælum samkvæmt áliti Matvælaöryggisstofnunar Evrópu (EFSA). COVID-19 er ekki matarborinn sjúkdómur en þeir sem eru í einangrun ættu þó ekki að útbúa mat fyrir aðra að ráðum landlæknis

Samkvæmt upplýsingum sem Matvælastofnun hefur gefið út er fólki, sem úrskurðað hefur verið í sóttkví vegna hugsanlegs smits af völdum kórónaveiru og er einkennalaust, heimilt að vinna við uppskeru grænmetis og mjaltir séu ekki aðrir þar að störfum líka. Mælt er með að einstaklingar á sauðfjár-, nautgripa-, svína-, alifugla- og hrossabúum sem hafa smitast leiti allra leiða til að fá afleysingu. Ef óhjákvæmilegt er að sýktur einstaklingur sinni störfum á slíkum búum þarf hann að gæta ýtrustu smitvarna og fylgja leiðbeiningum um heimaeinangrun á vef Embættis landlæknis.


back to top