Fréttir frá Nautís

Nautkálfurinn Haukur 0013 var við síðustu vigtun 427 kg en þá var hann 200 daga gamall en til samanburðar þá var Draumur 0009 sem var þyngsta nautið í síðasta hópi slétt 400 kg við 200 daga aldur.  Haukur hefur þyngst um 1866 gr/dag frá fæðingu en næstur er Valur 0017 með 1751 gr/dag.  Báðir þessir kálfar eru undan Hovin Hauk 74043. Haukur er bollangur, háfættur, með öflugan afturpart. Flestir kálfanna sýna góðan framgang í vexti en eðlilega þyngjast nautin meira en kvígurnar.


back to top