Veffræðsla LK – Aðbúnaður og aðstaða nautgripa á beit

Aðbúaður og aðstaða nautgripa á beit er þrettándi fyrirlestur vetrarins.  Fyrirlesari er Sigtryggur Veigar Herbertsson, dýraeftirlitsmaður hjá Matvælastofnun.  Áætluð birting á þessum fyrirlestri er 13. apríl 2015.

Veffræðsla Landssambands kúabænda er nú send út þriðja árið í röð.  Tilraunaárin tvö eru liðin og ánægjan það mikil að ákveðið var að halda áfram.  Hægt er að hlusta aftur og aftur á erindin eftir að þau hafa verið birt.   Rétt er að minna á að allir sem hafa áhuga geta fengið lykilorð og þannig aðgengi að bæði nýjum fyrirlestrum og þeim hafa verið sendir út. Til þess að fá lykilorð þarf einungis að senda tölvupóst á netfangið skrifstofa@naut.is með nafni og heimilisfangi.

Nánar á naut.is


back to top