Litamerkingar búfjár á Íslandi

Hér fyrir neðan er kort af legu sauðfjárveikivarnarlína samkvæmt auglýsingu nr. 793/2009. Sú breyting sem gerð var eykur vægi þeirra girðinga sem eftir eru. Flutningur yfir varnarlínur er ennþá óheimill, en flutningur á sauðfé og nautgripum verður frjálsari á stærri svæðum en verið hefur.  Þá hvílir ábyrgð á búfjareigendum að verja sinn bústofn og sýna ábyrgð gagnvart öðrum.



Varnarlínukort

Kortið sýnir með svörtum línum hvernig varnarlínurnar liggja. Brotalínan táknar aukavarnarlínu og litir tákna svæðaskiptingu litamerkinga á sauðfé. Ekki hefur verið tekin ákvörðun um hvort eða hvernig litamerkingum á sauðfé verður breytt. Þess vegna geta verið fleiri litir innan hvers hólfs og sami litur beggja megin við varnarlínur.


Eftirtaldar varnarlínur hafa verið lagðar niður:


•Andakílsár-, Hvítársíðu- (að hluta), Hítarár-, Dala-, Suðurfjarðar-, Rauðasands-, Mjólkár-, Þorskafjarðar-, Reyðarfjarðar-, Hornarfjarðar-, Hólmsár-, Kúðafljóts-, Eldhrauns-, Mýrdalssands- og Sólheimasandslína.
Við niðurfellingar á þessum línum verða svofelldar breytingar á varnarhólfum:


•Borgarfjarðarhólf- syðra og nyrðra, Mýra-, Hnappadals- og Dalahólf syðra sameinast í Vesturlandshólf.
•Steingrímsfjarðar-, Reykjanes- og Mið-Vestfjarðarhólf sameinast í Vestfjarðarhólf eystra.
•Vestfjarðar-, Rauðasands- og Arnarfjarðarhólf sameinast í Vestfjarðarhólf vestra.
•Skagafjarðarhólf og Eyjafjarðarhólf sameinast í Tröllaskagahólf.
•Öxarfjarðar-, Sléttu- og Norðausturhólf sameinast í Norðausturhólf.
•Héraðs- og Austfjarðarhólf sameinast í Héraðshólf og nær hólfið nú til Hamarsár.
•Suðursveitar- og Suðurfjarðarhólfið sunnan Hamarsár sameinast í Suðausturlandshólf.
•Síðu-, Skaftártungu-, Álftavers- og Mýrdalshólf og austasti hluti Rangárvallahólfs sameinast í Eyjafjalla- og Vestur Skaftafellssýsluhólf.

back to top