Upplýsingar um jarðræktarstyrki á Bændatorginu

Þann 28. desember sl. voru jarðræktarstyrkir vegna ræktunar ársins 2012 greiddir út til bænda. Styrkirnir eru greiddir úr sjóði sem er fjármagnaður af búnaðarlagasamningi, mjólkursamningi og sauðfjársamningi. Styrkurinn nam 13.350 kr. á fyrstu 20 ha, en 8.900 kr. á ræktun frá 20–40 ha. Ræktun umfram 40 ha var ekki styrkt.
Upplýsingar um jarðræktarstyrkina geta bændur nú nálgast á Bændatorginu. Umsókn um styrk, úttekt ráðunautar og bréf dagsett 3. janúar 2013 um staðfestingu þess að viðkomandi hefur hlotið styrk, hversu háan og inn á hvaða reikning hann hefur verið lagður. Í þeim tilfellum sem það er ekki raunhæft munu Bændasamtökin að sjálfsögðu senda bréfið póstleiðis sé þess óskað.

Upplýsingar um jarðræktarstyrkina munu einnig koma fram á skattyfirliti bænda sem þeir geta einnig nálgast á Bændatorginu. Skattyfirlitið verður sent bréfleiðis til allra bænda í febrúar, en bréf vegna jarðræktarstyrkja verða eingöngu aðgengileg á Bændatorginu þar sem bændur geta prentað þau út, vilji þeir það. Þetta fyrirkomulag sparar Bændasamtökunum umtalsverðan kostnað.


Þeir bændur sem ekki hafa aðgang að Bændatorginu eru hvattir til að útvega sér hann með því að nýskrá sig á forsíðu Bændatorgsins. Þá er nauðsynlegt að hafa aðalveflykil ríkisskattsstjóra við hendina til auðkenningar.

Sjá nánar:
Bændatorg


back to top