Ungt fólk og landbúnaður

Þann 23. október næstkomandi er stefnt að því að halda málþing í Dalabúð í Búðardal með yfirskriftinni Ungt fólk og landbúnaður og í framhaldi verður stofnfundur samtaka ungra bænda. Viljum við hvetja sem flesta til að mæta, bændur sem og annað fólk sem hefur áhuga á málefnum landbúnaðar og hinna dreifðu byggða landsins. Enn fremur viljum við vekja athygli á því að allt ungt fólk á aldrinum 18 til 35 ára getur orðið aðilar að samtökunum, ekki er skilyrði að vera starfandi bóndi, einungis að hafa áhuga á málefnum landbúnaðar og landsbyggðarinnar.
Dagskráin á föstudeginum hefst kl. 13:00 og er svo hljóðandi:
Forseti Íslands Herra Ólafur Ragnar Grímsson setur málþingið Ungt fólk og Landbúnaður

Tækifæri í sjálfbærri matvælaframleiðslu á Íslandi – Kristín Vala Ragnarsdóttir forstöðumaður

Umhverfis- og verkfræðideildar Háskóla Íslands

Ungir bændur á Íslandi – Þeirra eru tækifærin – Ingibjörg Sigurðardóttir Háskólinn á Hólum

Frá átaki til árangurs – Baldvin Jónsson verkefnisstjóri hjá Áform

Hvers vegna er spennandi að vera ungur bóndi – Haraldur Bendiktsson

Klukkan 16:30 hefst stofnfundur Samtaka ungra bænda.
Fundarstjóri verður Ásmundur Einar Daðason alþingismaður

Samfara málþinginu og stofnfundinum mun Félag sauðfjárbænda í Dalasýslu (FSD) halda hinn árlega haustfagnað sauðfjárbænda í Dalasýslu með tilheyrandi gleði og glensi þar sem má ganga að því vísu að Dalamenn fari á kostum líkt og vant er (sjá glæsilega dagskrá nánar á www.dalir.is).
Á laugardeginum verður staðið í fyrsta sinn fyrir keppninni Ungi bóndi ársins, fer hún fram í reiðhöllinni í Búðardal ásamt fjölmörgum öðrum viðburðum helgarinnar. Sérlegir ráðgjafar og hönnuðir keppninnar eru ekki af verri endanum, þann hóp skipa þeir Unnsteinn Snorri Snorrason landsráðunautur í bútækni, Óðinn Gíslason athafnamaður að Syðstu-Fossum og síðast en ekki síst Guðmundur Hallgrímsson sveitafittness sérfræðingur. Skorum við á sem flesta að skrá sig til keppni á netfangið margret@bssl.is

Viljum við benda þeim sem að hyggjast mæta að hægt er að panta gistingu á góðu verði á hótelinu að Laugum í Sælingsdal í S:434-1600/8612660.


back to top