Tilboðsmarkaður með greiðslumark mjólkur – niðurstöður

Á vef Matvælastofnunar er búið að birta niðurstöður á tilboðsmarkaði með greiðslumark mjólkur.  Þar kemur fram að jafnvægisverð er 320 kr/líter og er það hækkun frá síðasta markaði sem var 1. nóvember sl. um 15 kr/líter.  Alls bárust 68 tilboð um kaup eða sölu.

Fjöldi gildra tilboða um sölu = 10 
Fjöldi gildra tilboða um kaup = 57
Greiðslumark sem boðið var fram = 711.781 lítrar.
Greiðslumark sem óskað var eftir = 2.624.697 lítrar.
Greiðslumark sem viðskipti ná til eftir opnun tilboða = 711.781 lítrar.
Kauphlutfall viðskipta er 57,49 % 
Á meðfylgjandi mynd má sjá niðurstöðu tilboðsmarkaðar þann 1. apríl 2013. Á myndinni er sýnd blá lína framboðs og rauð lína eftirspurnar. Jafnvægisverð sem fram kom á markaðinum reyndist krónur 320 kr/l. 
 
 
 
 
 
 
 
Þeir sem lögðu inn kauptilboð og buðu verð = 320 kr/líter eða hærra fá nú keypt hlutdeild í því greiðslumarki sem til sölu kemur. 
 
Þeir sem lögðu inn tilboð um sölu á greiðslumarki á verði sem væri  320,-  kr/líter eða lægra selja nú greiðslumark sitt. 
 
Samanburður við fyrri markað sem haldinn var þann 1. Nóvember 2012 sýnir eftirfarandi:
 
að framboð er nú 64,4 % miðað við það sem boðið var til sölu á síðasta markaði.
að eftirspurn eftir greiðslumarki er nú 177,3 % miðað við það sem óskað var eftir á síðasta markaði.
að verð á greiðslumarki hefur hækkað í krónum talið um 15 kr/líter.

back to top