Stóra Ármót afurðahæsta búið í félaginu árið 2009

Aðalfundur Nautgriparæktarfélags Hraungerðishr. og Ölfuss var haldinn á Stóra Ármóti í gær. Fundurinn var með hefðbundnu sniði. Bjarni Stefánsson, formaður, fór yfir störf félagsins á liðnu ári en að því loknu fór Guðmundur Jóhannesson, nautgriparæktarráðunautur Búnaðarsambandsins, yfir niðurstöður skýrsluhalds liðins árs og reynd naut í notkun. Þá fór hann líka yfir hverning bændur getur nýtt sér niðurstöður úr tanksýnum. Hann fór svo að endingu yfir kúadóma en þá voru skoðaðar nokkrar kýr inni í fjósi.
Á fundinum voru afhent verðlaun fyrir afurðahæsta búið og kúna í félaginu. Afurðahæsta búið var Tilraunabúið á Stóra Ármóti með 6.529 kg mjólkur á árskú og 496 kg verðefna. Þetta er sjöunda árið í röð sem búið á Stóra Ármóti státar af mestum afurðum í félaginu.
Afurðahæsta kýrin var Tinna 292 á Brúnastöðum en hún mjólkaði 9.903 kg á árinu 2009.


back to top