Stofnfundur íslenska landbúnaðarklasans

Á vef Bændasamtaka Íslands bondi.is er boðað til stofnfundar íslenska landbúnaðarklasans, föstudaginn 6. júní næstkomandi. Fundurinn verður haldinn á Hótel Sögu frá kl. 15 til 17.  Landbúnaðarklasinn er hugsaður sem samstarfsvettvangur fyrirtækja og samtaka sem starfa í landbúnaði eða við úrvinnslu landbúnaðarafurða eða byggja á þjónustu við greinina.

Á síðasta Búnaðarþingi var frumsýnt áhugavert myndband um landbúnaðarklasann, sem má nálgast með því að smella hér.

Unnið hefur verið að undirbúningi að stofnun landbúnaðarklasa um nokkurt skeið. Stofnfundurinn er opinn fulltrúum allra fyrirtækja og samtaka sem telja sig eiga heima innan klasans.

Dagskrá

Fundarsetning kl. 15:00

Aðdragandi að stofnun klasans 
Haraldur Benediktsson, formaður undirbúningsnefndar

Hvers vegna landbúnaðarklasi? 
Tjörvi Bjarnason, sviðsstjóri hjá Bændasamtökunum

Fjárfestingarþörf í landbúnaði 
Jóhanna Lind Elíasdóttir, ráðgjafi hjá Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins

Tillaga að samþykktum landbúnaðarklasans

Stjórnarkjör samkvæmt samþykktum

Tillaga að starfs- og fjárhagsáætlun

Umræður um starfið fram undan

Fundarslit áætluð kl. 17:00

Léttar veitingar að loknum fundi.

Undirbúningsnefnd um stofnun landbúnaðarklasa


back to top