Sókn í landbúnaði – nýr búvörusamningur

Nýtt af vef atvinnuvega- og nýsköpunarráðuneytis:

Sjávarútvegs- og landbúnaðarráðherra og efnahags- og fjármálaráðherra hafa fyrir hönd ríkisins undirritað nýja samninga við bændur; svo kallaða búvörusamninga, en það eru samningar samkvæmt búnaðarlögum og samningar um starfsskilyrði við framleiðslu grænmetis, kindakjöts og nautgripaafurða.

Samningunum er ætlað að skapa landbúnaðinum ramma til að auka verðmætasköpun og nýta sem best tækifærin sem felast í sveitum landsins í þágu bænda, neytenda og samfélagsins alls. Sú uppbygging þarf að fara fram á grundvelli sérstöðu, sjálfbærni og fjölbreytni. Í því skyni eru í samningnum ný verkefni sem ætlað er að treysta stoðir landbúnaðarins og ýta undir framþróun, nýsköpun og byggðafestu.

Töluvert miklar breytingar verða á starfsumhverfi bænda með tilkomu nýrra samninga. Stefnt er að því að leggja af svo kallað kvótakerfi, bæði í mjólkurframleiðslu og í sauðfjárrækt. Losað verður um styrkjafyrirkomulagið, þannig að greiðslur til bænda verða ekki bundnar við framleiðslu á mjólk eða kjöti eins og verið hefur.

Sigurður Ingi Jóhannsson landbúnaðarráðherra: „Það er afar ánægjulegt að þessi samningar skuli vera í höfn. Ég tel að hér sé um tímamótasamninga að ræða, þar sem umtalsverðar breytingar verða gerðar á starfsskilyrðum. Af þeim sökum, meðal annars, er samningurinn til tíu ára. En ákvæði um tvær endurskoðanir eru í honum og menn geta því breytt um stefnu eða fyrirkomulag, ef þurfa þykir.“

Útgjöld ríkisins til landbúnaðarmála hækka um rúmar níu hundruð milljónir árið 2017 en fara stiglækkandi út samningstímann og verða heldur lægri á síðasta ári samningsins en þau verða í ár.

Ástæður aukningarinnar eru þær helstar að tímabundið framlag vegna innleiðingar á nýjum reglugerðum um velferð dýra hafa mikinn kostnað í för með sér, stuðningur við átak í tengslum við innflutning á nýju erfðaefni af holdanautastofni til að efla framleiðslu og bæta gæði á nautakjöti, aukinn stuðningur við lífræna ræktun og framlög til að skjóta stoðum undir aukna fjölbreytni í landbúnaði.

Hægt er að lesa meira inná vef ráðuneytisins www.atvinnuvegaraduneyti.is


back to top